Hlaupastyrkur

Hlauparar

Marathon

Páll Ingi Pálsson

Hleypur fyrir Einstök börn Stuðningsfélag og er liðsmaður í Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Samtals Safnað

2.000 kr.
1%

Markmið

200.000 kr.

Ég ætla að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir dóttur mína Bryndísi Emmu sem er Einstakt barn. Það er ekki alveg nóg fyrir mig að skokka þessa vegalengd í hlaupagallanum og því ætla ég, ásamt félögum í lögreglunni, að hlaupa vegalengdina í lögreglufatnaði, vesti og belti - sem sagt að fullu útkallsfær.

Einstök börn vinna frábært starf fyrir krakka með sjaldgæfa sjúkdóma og sjaldgæf heilkenni.

Einstök börn Stuðningsfélag

Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Félagið var stofnað þann 13. mars 1997 af foreldrum 13 barna, sem áttu ekki heima í neinum öðrum starfandi félagasamtökum. Í dag eru um hátt í 700 fjölskyldur í félaginu, og sumar fjölskyldur eru með fleiri en eitt langveikt barn. Það eru yfir 500 ólíkir sjúkdómar á skrá í félaginu, sem eiga það sameiginlegt að vera langvinnir og hafa varanleg áhrif á lífslíkur barnanna, og lífsgæði barnanna og fjölskyldna þeirra. Í erfiðustu tilfellunum er það vitað með vissu að börnin munu ekki lifa fram á fullorðinsár. Rekstur félagsins er þungur þar sem fjölgun hefur verið mikil, þörf á þjónustu og úrræðum stór aukist og mikil orka fer í að aðstoða foreldra við að leita að aðstoð og finna úrræði sem henta börnum þeirra þar sem kerfið er flókið.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • ÍTR
  • 66 Norður
  • Kynnisferðir / Reykjavik Excursions
  • Gatorade