Hlaupastyrkur

Hlauparar

21,1 km - Almenn skráning

Klaudia Pétursdóttir

Hleypur fyrir Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Samtals Safnað

107.000 kr.
100%

Markmið

100.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Þann 23.ágúst ætla ég að hlaupa hálft maraþon – 21,1 km – og ég geri það ekki bara fyrir mig, heldur fyrir alla sem hafa orðið fyrir ofbeldi og þurfa stuðning. Ég ætla að hlaupa fyrir Bjarkarhlíð, því það er félag sem veitir þolendum sem hafa orðið fyrir ofbeldi öflugan stuðning, úrræði og öryggi – eitthvað sem ég sjálf hefði þurft þegar ég var yngri.

Ég varð fyrir miklu líkamlegu og andlegu ofbeldi af hendi föður míns sem barn/unglingur. Þetta hafði og hefur djúp áhrif á mig og breytti því hvernig ég upplifi sjálfa mig og heiminn í kringum mig.

Að hlaupa þetta maraþon endurspeglar mína vegferð, að endurheimta stjórn, brjóta upp þögnina og breyta sársaukanum í styrk ❤️

Með því að styrkja mig í þessu hlaupi styrkir þú einnig Bjarkarhlíð og hjálpar þeim að halda áfram að vera skjól fyrir aðra þolendur sem þurfa á því að halda. Allt framlag skiptir máli – bæði stórt og smátt.

Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Bjarkarhlíð er þjónustumiðstöð fyrir fullorðna þolendur ofbeldis af öllum kynjum. Þar gefst einstaklingum kostur á viðtölum og ráðgjöf hjá ráðgjöfum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu og á þeirra forsendum. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dómstólaráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar. Bjarkarhlíð tók formlega til starfa 1. febrúar 2017

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Oliver Johannsson
Upphæð10.000 kr.
Lang flottust
Fríða Dís Guðmundsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Ég dáist að hugrekki þínu og styrk, gangi þér vel í hlaupinu 💪❤️
Elínborg Gunnarsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Gangi þér sem allra best að hlaupa og í lífinu :-)
Arndís
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
RM
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Monika Jónsdóttir
Upphæð15.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Kolbrún Valvesdóttir
Upphæð1.000 kr.
Takk fyrir að senda mikilvæg skilaboð
Ingibjörg Ottesen
Upphæð5.000 kr.
Takk Klaudia
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Áfram þú Klaudia. Þú ert sterk.Takk fyrir að þora að segja okkur sannleikann. Þú átt bara eina þig. Áfram þú !
Zeljka Kristín Klobucar
Upphæð2.000 kr.
Takk fyrir að vekja athygli á málefninu og gangi þér vel.
Margrét
Upphæð2.000 kr.
Gangi þér vel
Ólöf Jóhannsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Takk fyrir að vekja athygli á málefninu
Eva Agata Alexdóttir
Upphæð2.000 kr.
Wspaniałe przedsiewziecie ❤️
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Gabriel Vignisson
Upphæð10.000 kr.
Áfram þú ❤️
Sesselja Sif
Upphæð2.000 kr.
Hef fulla trú á þér🩷 gangi þér vel
Anna Z
Upphæð5.000 kr.
❤️‍🩹
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Auður
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Sigrun Baldursdottir
Upphæð3.000 kr.
Fallegt framlag elsku Klaudia min !
Henryka Zoladek
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Ingibjörg Viktoría
Upphæð5.000 kr.
Áfram Klaudia 🩷
Sandra Baldursdóttir
Upphæð1.000 kr.
You go girl!
Monika Jónsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Stendur þig vel, haltu áfram!
Andrea Borgþórsdóttir
Upphæð2.000 kr.
💪
Kristín Lilja Jónsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Stolt af þér!

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • ÍTR
  • 66 Norður
  • Gatorade