Runners

Enok vatnar jonsson
Supporting Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Ég hef ákveðið að heita á Vökudeild Landspítalans í minningu Emilíu Lífar Jónsdóttur systur minnar heitinnar. Starfsfólk vökudeildar vinnur ómetanlegt starf við afar krefjandi aðstæður þar sem þeir takast á við afarkrefjandi aðstæður. Á hverju ári þurfa fjölmörg nýfædd og veik börn að dvelja á Vökudeildinni, sum í stuttan tíma en önnur mun lengur. Fyrir foreldra og aðstandendur getur þessi tími verið einn sá erfiðasti sem þeir upplifa í lífi sínu.
Á Vökudeildinni mætast sorg og gleði, óvissa og von þar sem tekist er á við erfiðar stundir fyrir bæði starfsfólk, fjölskkyldur aðstandendur og börn en sem betur fer er einnig að sjá ótrúlegar framfarir og gleði sem fylgir því þegar lítið barn fær loksins að fara heim.
Starfsfólk Vökudeildarinnar vinnu ómetanlegt starf sem verður seint metið til fjár.
Markmið mitt með hlaupinu er að safna 500.000 kr. í áheit til Vökudeildar Landspítalans. Hvert einasta framlag, stórt eða smátt, skiptir máli og hjálpar til við að styðja við mikilvægt starf deildarinnar og þær fjölskyldur sem þurfa á henni að halda.
Ég mun hlaupa mínar kílómetra með þetta mikilvæga málefni í huga og væri ómetanlegt að fá ykkur með mér.
Takk fyrir stuðninginn og fyrir að hjálpa mér að hlaupa fyrir Vökudeildina. ❤️🏃♀️
Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Hringurinn er kvenfélag, stofnað 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
New pledges













