Team

Bjartey Cool
Supporting Children with Cancer
Total collected
Goal
Preferred Payment Method

Hlaupahópurinn Bjartey Cool hleypur í minningu Bjarteyjar Kjærnested Jónsdóttur fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Bjartey var mikil frjálsíþróttastelpa og æfði með Breiðabliki. Hún hafði gaman af allri hreyfingu og voru hlaup engin undantekning. Bjartey greindist með ólæknandi heilaæxli í lok júni 2021 þá 10 ára gömul og lést vegna þess í apríl 2022 aðeins 11 ára. Þegar barn greinist með krabbamein fer öll tilvera fjölskyldunnar á hvolf og þá er ómetanlegt að geta leitað stuðnings hjá félagi eins og Börn með krabbamein.
Children with Cancer
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð Barna með krabbamein í Reykjavíkurmaraþoni 2026 https://www.facebook.com/events/1084584477472968
Runners
Edda Laufey Laxdal
Valdís Jóna Mýrdal
Sigríður Þórdís Valtýsdóttir
Sigríður Ída Emilsdóttir
Þórdís Hrönn Pálsdóttir
Kristbjörg Kaja Ringsted
Jón Valur Kristjánsson
Jón Eiríksson
Hrafnhildur Rós Jónsdóttir
Hörður Sævar Harðarson
Fríða Ruiz-Völudóttir
New pledges
















































