Runners

Bryndís Lára Halldórsdóttir
Supporting Children with Cancer and is a member of HetjuSaga
Total collected
Preferred Payment Method
HetjuSaga
Við höfum tekið höndum saman og myndað hlauphópinn Hetju Saga sem mun taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Við hlaupum til heiðurs og stuðnings Sögu Bjartar, sem var aðeins 7 ára gömul þegar hún greindist með hvítblæði.
Saga hefur tekist á við þetta stóra verkefni af ótrúlegu hugrekki, sýnt styrk sem fáir geta ímyndað sér, og staðið sig afar vel í meðferð undanfarna mánuði.
Hún er okkur öllum mikil fyrirmynd og sönn hetja!
Með hlaupinu viljum við leggja okkar af mörkum til styrktarfélagsins Börn með krabbamein, sem styður börn eins og Sögu og fjölskyldur þeirra á erfiðum tímum. Við söfnum áheitum til að styrkja þetta mikilvæga starf og vonumst til að þú viljir leggja okkur lið.
Hver króna skiptir máli! Takk fyrir að hlaupa með okkur í anda og styðja við Sögu og aðrar hetjur.
Children with Cancer
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð Barna með krabbamein í Reykjavíkurmaraþoni 2026 https://www.facebook.com/events/1084584477472968
New pledges













