Góðgerðarmál

Minningarsjóður Bryndísar Klöru - Riddarar kærleikans 🩷
Samtals Safnað
Fjöldi áheita
Minningarsjóður Bryndísar Klöru var stofnaður af fjölskyldu og vinum Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést aðeins 17 ára gömul eftir hnífaárás á Menningarnótt í Reykjavík í ágúst 2024.
Markmið sjóðsins er að draga úr ofbeldi meðal barna og ungmenna og styðja við verkefni sem efla öryggi, geðheilsu og kærleiksríkt samfélag. Sjóðurinn vinnur bæði að því að styðja við einstaklinga og að byggja upp varanlegar lausnir sem hafa raunveruleg áhrif.
Stærsta verkefni sjóðsins er uppbygging Bryndísarhlíðar- nýrrar móttöku- og stuðningsmiðstöðvar fyrir börn og ungmenni sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða áföllum. Þar verður veitt samþætt þjónusta á einum stað með áherslu á öryggi, snemmtæka íhlutun og faglega eftirfylgni.
Bryndísarhlíð verður að Laufásvegi 81, á lóð Landspítalans og stefnt er að formlegri opnun þann 2. febrúar 2027 - á 20 ára afmælisdegi Bryndísar Klöru. Sjá nánar á vefsíðu Bryndísarhlíðar
Sjóðurinn veitir einnig styrki til verkefna sem stuðla að forvörnum og jákvæðri þróun í samfélaginu. Úthlutun styrkja fer fram árlega á afmælisdegi Bryndísar Klöru.
Riddarar kærleikans er samfélagsleg hreyfing sem hefur sprottið upp í kjölfarið - fólk sem velur að sýna hugrekki í daglegum samskiptum, standa með öðrum og vinna gegn ofbeldi með kærleika og ábyrgð.
Reykjavíkurmaraþonið og Menningarnótt 2026 🩷
Aftur í ár ætlar hópur hlaupara að hlaupa fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru í Reykjavíkurmaraþoninu og safna um leið fyrir starf sjóðsins.
Það þykir okkur ótrúlega vænt um.
Á Menningarnótt í fyrra skapaðist einstök samvera í kringum hlaupið þegar um 350 hlauparar klæddust bleiku og hlupu fyrir Bryndísi Klöru.
Í ár verður fyrirkomulagið einfaldara og Minningarsjóðurinn verður ekki með sérstaka samveru eða viðburð í tengslum við hlaupið. Menningarnótt hefur djúpa og sérstaka merkingu fyrir fjölskyldu Bryndísar og fólkið sem stóð henni næst og í ár ætlum við að eiga daginn aðeins rólegri.
Bleiku bolirnir verða þó að sjálfsögðu með okkur. 🩷
Við höfum fengið nýja bleika boli fyrir þá sem eru skráðir að hlaupa fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Hlauparar sem vilja fá bol eru hvattir til að hafa samband við okkur í gegnum Facebook-síðu sjóðsins og senda nafn og bolastærð.
Þegar hlaupinu lýkur þarf kærleiksstemmningin ekkert að gera það
DJ Margeir og vinir hans standa fyrir MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt frá kl. 12:30 til 22:00.
Þar verður kærleiksdanspartý þar sem dans, kraftur og kærleikur fá að ráða ferðinni og MOMENT safnar jafnframt fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru.
Við hvetjum hlauparana okkar, vini sjóðsins og alla sem eiga leið um miðborgina til að líta þar við eftir hlaupið, dansa með og taka þátt í kærleiksstemmningunni.
Okkur þykir sérstaklega vænt um að sjá fólk taka frumkvæðið, skapa eitthvað fallegt og hjálpa þannig til við að bera minningu Bryndísar og þau gildi sem sjóðurinn stendur fyrir áfram út í samfélagið.
Takk fyrir að hlaupa með okkur
Minningarsjóður Bryndísar Klöru er skráður á almannaheillaskrá Skattsins og framlög til sjóðsins eru frádráttarbær frá skatti samkvæmt gildandi reglum.
Við þökkum innilega öllum þeim sem hlaupa fyrir sjóðinn, safna áheitum og leggja okkur lið.
Hvert framlag hjálpar okkur að vinna að betri og öruggari framtíð fyrir börn og ungmenni.
Nánari upplýsingar má finna á mbk.is
Með kærri þökk og hlýjum kveðjum,
Minningarsjóður Bryndísar Klöru 🩷
Einstaklingar sem safna fyrir félagið
Nýir styrkir
















