Hlaupahópur

Vinir Guðjóns
Hleypur fyrir Duchenne Vöðvarýrnun á Íslandi
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Guðjón Reykdal Óskarsson var vísindamaður, baráttumaður og kær vinur. Hann kunni að lifa lífinu til fulls og var mörgum innblástur og fyrirmynd.
Guðjón fæddist með Duchenne-vöðvarýrnun og var ötull talsmaður þeirra sem lifa með sjúkdómnum. Hann lagði mikið af mörkum til vitundarvakningar og leitar að lækningu.
Við erum hópur fjölskyldu og vina Guðjóns sem viljum heiðra minningu hans með því að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir Duchenne-samtökin á Íslandi, sem vinna að því að efla þekkingu á sjúkdómnum og styðja rannsóknir.
Við erum afar þakklát fyrir allan stuðning.
Duchenne Vöðvarýrnun á Íslandi
Duchenne vöðvarýrnun (DMD) er erfðasjúkdómur sem einkennist af versnandi hrörnun og máttleysi í vöðvum vegna breytinga á próteini sem kallast dystrophin sem hjálpar til við að halda vöðvafrumum ósnortnum. DMD er einn af fjórum sjúkdómum sem kallast dystrophinopathies.
Hlauparar í hópnum
Guðrún Nína Óskarsdóttir
Árni Sturluson
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Viðar Bragi Þorsteinsson
Priyanka Thapa
Nýir styrkir






























