Hlauparar

Samtals Safnað
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég er að hlaupa fyrir alla með endó! Það er erfitt að lifa með endó og Endósamtökin hafa hjálpað mér mikið.
Meiri meðvitund, meiri fræðsla, og meiri stuðningur fyrir alla 💛💜. Þetta er það sem Endósamtökin stefna að á hverjum degi og þess vegna finnst mér svo mikilvægt að styðja Endósamtökin.
Endósamtökin
Um 10% fólks sem fæðist með leg er með endómetríósu eða um 176 milljónir í heiminum. Endómetríósa er ekki bara slæmir túrverkir. Sjúkdómnum geta fylgt miklar kvalir og ýmsir erfiðir fylgikvillar, þar á meðal meltingarvandræði og ófrjósemi. Meðalgreiningartími er 7-8 ár. Stuðningur og fræðsla er meginverkefni Endósamtakanna. Samtökin vinna ötullega að því að fræða almenning og heilbrigðisstarfsfólk um sjúkdóminn. Margt fólk með endómetríósu finnur fyrir vantrú annarra og þarf enn þann dag í dag að berjast fyrir viðurkenningu á líðan sinni og einkennum.
Nýir styrkir












