Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég ætla að hlaupa 1/2 marþon og safna fyrir Krabbameinsfélag Austfjarða. Þegar pabbi minn, Gísli Sigurbergur Gíslason lést úr krabbameini rétt tæplega sjötugur, þá ákvað ég að gera eitthvað í minningu hans og tók fljótlega sæti í stjórn Krabbameinsfélags Austfjarða þar sem ég er enn. Ég veit hvað félagið skiptir krabbameinsgreinda á Austfjörðum og aðstandendur þeirra miklu máli. Því bið ég ykkur að styðja félagið með því að heita smá upphæð á mig.
Ég mun hugsa til pabba, Gumma Bjarna bæjarstjóra, Ingvars Lundberg SúEllen bróður, Sveins bekkjarbróður og fleiri sem töpuðu því miður baráttunni við vágestinn vonda, krabbameinið.
Krabbameinsfélag Austfjarða
Krabbameinsfélag Austfjarða er góðgerðarfélag sem styður við hagsmuni krabbameinsgreindra og aðstandenda og þjónustar svæðið sem telur Fjarðabyggð og Djúpavog. Félagið hefur það að markmiði að berjast í hvívetna gegn krabbameini með forvörnum, stuðningi við rannsóknir, þróun á lækningaraðferðum og endurnýjun á lækningatækjum. Félagið veitir stuðning og ráðgjöf til félaga sinna og fjölskyldna þeirra, sem greinst hafa með krabbamein og eru eða hafa verið í þeirri baráttu og greiðir til dæmis niður dvalarkostnað og aksturstyrk sjúklinga þegar þeir þurfa að dvelja til lengri tíma fjarri heimilum sínum. Félagið rekur skrifstofu þar sem starfar ráðgjafi. Félagið býður krabbameinsgreindum einnig upp á sálfræðiþjónustu, fjölskylduráðgjöf, markþjálfun og árskort í sund sem og að halda úti karla og konuhópi fyrir krabbameinsgreinda.
Nýir styrkir












