Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 km - Almenn skráning

Ísak Óli Sigurjónsson

Hleypur fyrir Krabbameinsfélagið

Samtals Safnað

14.000 kr.
19%

Markmið

75.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Í ár hleyp ég 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.

Árið 2024 greindist ég með þriðja stigs ristilkrabbamein og frá þeim tíma hef ég notið stuðnings og þjónustu frá Krabbameinsfélaginu. Á krefjandi tímum þar sem mikil óvissa ríkir, skiptir miklu máli að hafa aðgang að fræðslu, ráðgjöf og fólki sem skilur hvað maður er að ganga í gegnum.

Með þátttöku minni langar mig að leggja mitt af mörkum svo Krabbameinsfélagið geti haldið áfram að veita öðrum þann mikilvæga stuðning sem ég hef sjálfur fengið.

Ef þú hefur tök á því væri ég afar þakklátur fyrir að styðja söfnunina. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar Krabbameinsfélaginu að standa áfram vörð um fólk og fjölskyldur sem takast á við krabbamein.

Takk kærlega fyrir stuðninginn.

Krabbameinsfélagið

Krabbameinsfélagið er tryggur bakhjarl þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Starf félagsins byggist alfarið á stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Með þinni aðstoð getum við dregið úr áhrifum krabbameina á samfélagið með því að skapa þekkingu, berjast fyrir breytingum og veita fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og sérhæfða ráðgjöf fagfólks. Markmið félagsins er að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins með og eftir krabbamein. Með stuðningi þjóðarinnar höfum við helgað okkur baráttunni gegn krabbameinum í 75 ár og hvikum hvergi heldur höldum ótrauð áfram, með þér og fyrir þig. Því lífið liggur við.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Bjork
Upphæð2.000 kr.
Þú ert geggjaður! Haltu þessu áfram :) er ekki með mikið en vildi samt gefa einhvað
Linda og Viktor
Upphæð10.000 kr.
Áfram þú elsku besti okkar!!
Tengdapabbi
Upphæð2.000 kr.
Gangi þér vel

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland