Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég hef valið að hlaupa fyrir Umhyggju í mínu fyrsta maraþoni!
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og barna með miklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Ég átti mjög erfitt með að velja mér eitt góðgerðarfélag til þess að styrkja en innan Umhyggju starfa 19 félög og samtök á borð við Einstök börn og CP félagið svo eitthvað sé nefnt.
Málefni barna eru mér afar kær og þess vegna mun ég hlaupa 42.2km með ánægju og stolti fyrir Umhyggju 22.ágúst næstkomandi!
Umhyggja - félag langveikra barna
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru 19 félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu. Félagið veitir fjölskyldum langveikra barna margs konar stuðning, svo sem sálfræðiþjónustu, lögfræðiráðgjöf, orlofshúsadvöl, námskeið og fjárstyrki. Hlaupararnir okkar fá hlaupabol sem þakklætisvott fyrir stuðninginn. Hægt er að nálgast hlaupabol og buff á skrifstofu félagsins í ágúst í samráði við starfsfólk, umhyggja@umhyggja.is eða sími 5524242.
Nýir styrkir












