Hlauparar

Samtals Safnað
Ákjósanleg greiðsluleið
Í sumar kærði ég fyrir kynferðisbrot og hef ákveðið að hlaupa fyrir Stígamót í Íslandsbankamaraþoninu.
Það tók mikla umhugsun að kæra og þau sem þekkja mig skilja að mér þótti það mjög erfitt en öðrum þykir kannski fráleitt að ég hafi þurft að hugsa mig um. Líkt og mörg önnur hef ég upplifað að það sé brotið á mér en það er gríðarlega stórt og erfitt skref að segja frá og gera mál úr því.
Fyrstu viðbrögð eftir þetta brot var skömm. Ég brotnaði alveg niður og fann fyrir ofsaótta en gerði lítið úr atburðinum og sjálfum mér og fannst að ég ætti nú ekki að láta eitthvað svona hafa áhrif á mig. Þetta er eitthvað sem ég hef upplifað áður, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Í þetta sinn var ég svo heppin að ég var með vitni og stuðning um leið. Ég fékk stuðning frá maka, fjölskyldu og vinum um leið og þetta gerðist. Þau hjálpuðu mér að sjá að það var virkilega brotið á mér og það hafi ekki verið mér að kenna. Það var erfitt að viðurkenna að þetta hafði gerst við mig aftur en þau gáfu mér styrk til að tilkynna til lögreglu. Mér fannst líka mikilvægt að ég gerði mitt allra besta til að koma í veg fyrir að manneskjan myndi brjóta á fleirum afþví ég hef haft gríðarlegt samviskubit eftir fyrri brot þar sem ég tilkynnti ekki.
Nánast um leið og þetta gerðist fór ég að hugsa hvernig ég gæti komið í veg fyrir að fólk brjóti á öðrum á þennan hátt OG að þolendur finni fyrir stuðningi og viti að þetta sé aldrei réttlætanlegt. Það er svo mikilvægt að við vinnum að því að skapa samfélag þar sem fólk virðir mörk annarra og veit að kynferðisofbeldi á aldrei rétt á sér. Ég hugsaði líka hversu heppin ég er að hafa fólk í kringum mig sem ég get treyst og sem hlustar á mig og trúir mér.
Stígamót sinna fræðslu og forvörnum með það að markmiði að auka þekkingu, stuðla að heilbrigðum mörkum og vinna gegn kynferðisofbeldi í samfélaginu.
Þar að auki er mjög mikilvæg vinna Stígamóta sem kemur að því að veita stuðning og öruggt rými fyrir þá sem verða fyrir kynferðisbroti. Mér finnst mjög erfitt að hugsa til þess að ég hef ekki sagt frá áður og hvað skömmin hefur verið gríðarleg. Mig langar svo að fólk sem verður fyrir kynferðisbroti viti að þau eru ekki ein, þau eigi alls ekki að skammast sín og ef þau vantar stuðning þá geti Stígamót hjálpað.
Stígamót
Stígamót eru samtök sem vinna gegn kynferðisofbeldi. Á Stígamótum er boðið upp á stuðningsviðtöl og sjálfshjálparhópa fyrir fólk af öllum kynjum sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Stígamót veita einnig aðstandendum bæði brotaþola og gerenda ráðgjöf. Stígamót halda einnig úti forvarnarverkefninu Sjúkást og stunda virka hagsmunagæslu til að búa til betra samfélag án kynferðisofbeldis.
Nýir styrkir












