Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 km - Almenn skráning

Emma Viktorsdóttir

Hleypur fyrir Dýrahjálp Íslands

Samtals Safnað

46.000 kr.
100%

Markmið

17.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Í ár hefði Simbi minn orðið 17 ára. 💙

Í tilefni af afmælinu hans langar mig að gera eitthvað sem hefði skipt hann máli og mig líka.

Eins og flestir sem þekkja mig vita eru dýr mér einstaklega kær. Þess vegna ætla ég að safna fyrir Dýrahjálp og markmiðið mitt er að safna 17.000 kr.

Ég mun ekki hlaupa í ár heldur ganga alla 10 kílómetrana fyrir öll dýrin sem bíða eftir öruggu og ástríku heimili.

Ef þú hefur tök á því væri ég ótrúlega þakklát ef þú myndir leggja söfnuninni lið. Hvort sem það eru 500 kr., 1.000 kr. eða meira, þá skiptir hvert framlag máli og hjálpar Dýrahjálp að sinna dýrum sem þurfa á hjálp að halda.

Takk fyrir að hjálpa mér að minnast Simba á fallegan hátt og um leið gera líf annarra dýra aðeins betra ❤️🐾

Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stefnir að því að stofna til þess dýraathvarf og að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við dýravernd. Þangað til hægt verði að stofna til slíks athvarfs mun félagið, með aðstoð sjálfboðaliða félagsins, leitast við að finna þeim dýrum sem annars væri lógað ný heimili, hvort sem það er fósturheimili til skamms tíma þar til framtíðarheimili finnst eða beint á varanlegt heimili.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Guðbjörg Ásgeirsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel
Emma meme
Upphæð10.000 kr.
Stattu þig elsku vinkona, you go girl 🥳
Fjóla Pétursdóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Ingibjörg
Upphæð10.000 kr.
Gangi þér vel elsku Emma mín með stóra hjartað, þú ert sannur dýravinur ❤️❤️
Júní
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð5.000 kr.
Vel gert!
Hrafnhildur Jespersen
Upphæð2.000 kr.
💪🏻
Birna isaksdottir
Upphæð2.000 kr.
Frábært framtak Emma
Solla
Upphæð2.000 kr.
Ert svo mikið yndi Emmma mín
Anna Guðrún Heimisdóttir
Upphæð2.000 kr.
Fyrir Simba ❤️

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland