Hlaupastyrkur

Hlauparar

Skemmtiskokk

Sonja Stefánsdóttir

Hleypur fyrir Dýrahjálp Íslands

Samtals Safnað

160.000 kr.
100%

Markmið

100.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Ég ætla að taka þátt í 3 km skemmtiskokkinu í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og safna áheitum fyrir málefni sem stendur mér einstaklega nærri eða Dýrahjálp Íslands. ❤️🐾

3 km hljómar kannski ekki löng vegalengd í samhengi við maraþon, en fyrir mig hafa þessir 3 km töluvert meiri þýðingu en talan gefur til kynna. Fyrir nokkrum árum hefði ég ekki trúað því að ég ætti eftir að geta gengið þessa vegalengd, hvað þá hlaupið eða skokkað hana. Að geta staðið á ráslínunni í ár er því persónulegur áfangi sem mig langar að nota til góðs.

Það var auðvelt að ákveða hvaða málefni ég vildi hlaupa fyrir. Dýrahjálp Íslands og dýrin sem við aðstoðum eru stór hluti af mínu lífi og málefni sem brennur á mér.

Í starfi mínu hjá Dýrahjálp sé ég á hverjum degi hversu mikilvægt það er að samtök eins og Dýrahjálp séu til. Til okkar koma dýr sem þurfa á hjálp að halda af alls konar ástæðum og stundum eru við þeirra eina úrræði. Ég sé líka hversu mikið þarf til að halda starfseminni gangandi. Á bak við hvert dýr sem við getum hjálpað er dýralækniskostnaður, fóður, lyf, aðföng, endurhæfing og ótal margt annað. Við viljum geta aðstoðað öll þau dýr sem þurfa á okkur að halda en til þess þurfum við stuðning.

Þess vegna ætla ég að láta þessa 3 km telja. 🐾

Ef þú vilt hvetja mig áfram þætti mér ótrúlega vænt um áheit, hvort sem það er stórt eða smátt. Hver króna skiptir máli og fer í að hjálpa dýrum sem þurfa svo sannarlega á okkur að halda.

Ég skal svo gera mitt besta til að koma mér alla 3 kílómetrana yfir marklínuna. 😅❤️

Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stefnir að því að stofna til þess dýraathvarf og að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við dýravernd. Þangað til hægt verði að stofna til slíks athvarfs mun félagið, með aðstoð sjálfboðaliða félagsins, leitast við að finna þeim dýrum sem annars væri lógað ný heimili, hvort sem það er fósturheimili til skamms tíma þar til framtíðarheimili finnst eða beint á varanlegt heimili.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Birna Markúsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel
Lilja systir💕
Upphæð2.000 kr.
Ánægð með þig Sonja mín
Sigga Stína
Upphæð2.000 kr.
❤️
Haukur gunnlaugsson
Upphæð10.000 kr.
Vegna pílu og týru
Elsa M
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Þórhildur
Upphæð2.000 kr.
Áfram Sonja
Ingunn
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Fjóla Pétursdóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Àsdís Sigurðardóttir
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Jóna
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Stefán R. Kistjánsson
Upphæð10.000 kr.
Allt fyrir dýrin
Rebekka Berta
Upphæð3.000 kr.
Áfram Sonja! Ert algjör fyrirmynd fyrir mig og elsku dýrin <3
Jónía Jónsdóttir
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Ýr Bergsteinsdóttir
Upphæð1.500 kr.
Engin skilaboð
Guðbjörg
Upphæð2.000 kr.
Fallegt og þarft starf
Anna og Jón Þór
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Auður Hjaltadóttir
Upphæð5.000 kr.
Dýrin eru svo heppin að eiga þig að❤️
Selma Hreiðarsdóttir
Upphæð1.000 kr.
Vel gert Sonja💪
Inga
Upphæð6.000 kr.
Gangi þér vel
Anna Tryggvadóttir
Upphæð15.000 kr.
Engin skilaboð
Jóhanna Karitas
Upphæð2.000 kr.
Gangi þér vel 👏
Margrét Sóley
Upphæð2.500 kr.
Það sem dýrin eru heppin að hafa þig, þú leggur svo mikið í þetta starf alla daga og af svo mikilli ástríðu. Gangi þér vel!
Upphæð35.000 kr.
Tala máli þeirra sem geta það ekki sjálf er án efa göfugasta starf sem maðurinn getur gert. Þú ert fyrirmynd og duglegasta kona sem ég veit um.
Bergþóra Magnea Haraldsdóttir
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Linda Hreiðarsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland