Hlauparar

Gunnar Jónsson
Hleypur fyrir Börn með krabbamein og er liðsmaður í Bjartey Cool
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið

Ég hleyp í minningu systurdóttur minnar Bjarteyjar sem lést úr krabbameini í apríl 2022 aðeins 11 ára gömul. Börn með krabbamein hafa reynst fjölskyuldur Bjarteyjar mjög vel og ég hvet ykkur öll til að stiðja þetta góða málefni.
Börn með krabbamein
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð Barna með krabbamein í Reykjavíkurmaraþoni 2026 https://www.facebook.com/events/1084584477472968
Nýir styrkir












