Hlauparar

Elísabet Una Jakobsdóttir
Hleypur fyrir Börn með krabbamein og er liðsmaður í Áfram Kolfinna Rán!
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Elísabet kynntist Kolfinnu Rán í fyrsta bekk, þegar þær byrjuðu að æfa saman fótbolta. Úr varð perluvinskapur. Ekki fór allt að óskum þegar Kolfinna greindist með krabbamein og ekki var lengur sjálfsagður hlutur að mæta á æfingar eða í skólann. Hún hefur þó einbeitt sér að því að sigrast á krabbameininu, í annað sinn, enda sannkölluð hetja og grjóthörð fótboltastelpa sem gefur ekkert eftir, hvar sem baráttan er háð. Í haust ætla þær stöllur saman í nýjan skóla, en fyrst ætlar liðið þeirra í FH að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu, til styrktar félaginu Börn með krabbamein, til heiðurs Kolfinnu. Við hvetjum öll sem geta til að leggja málinu lið. ÁFRAM KOLFINNA RÁN! og munum --> Lífið er núna! 🧡💪🧡
Börn með krabbamein
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð Barna með krabbamein í Reykjavíkurmaraþoni 2026 https://www.facebook.com/events/1084584477472968
Nýir styrkir












