Góðgerðarmál

Parkinsonsamtökin
Samtals Safnað
Fjöldi áheita
Takk fyrir að hlaupa og safna áheitum fyrir Parkinsonsamtökin í Reykjavíkurmaraþoninu!
Móttaka fyrir hlaupara verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst kl. 16–18 í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Allir sem hlaupa fyrir Parkinsonsantökin fá afhendan bol og lítinn glaðning fyrir hlaupið. Boðið verður upp á léttar veitingar og allir vinir og vandamenn eru velkomnir.
Á hlaupadaginn sjálfan, laugardaginn 22. ágúst, verðum við með hvatningarstöð við Eiðstorg þar sem við hvetjum okkar frábæru hlaupara áfram! Við hvetjum alla félagsmenn og vini og fjölskyldu hlauparanna til að mæta á hvatningarstöðina. Athugið að það þarf að mæta mjög tímanlega á hvatningarstöðina vegna mikillar umferðar við háskólasvæðið þar sem hlaupið hefst.
Fylgstu með fréttum fyrir hlaupara Parkinsonsamtakanna á Facebook: https://www.facebook.com/groups/hlaupastyrkur/
Takk fyrir að hlaupa og safna áheitum fyrir Parkinsonsamtökin!
Einstaklingar sem safna fyrir félagið
Hópar sem safna fyrir félagið
Nýir styrkir

















