Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið

Í ár ætla ég að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Parkinsonsamtökunum.
Ástæðan er mér mjög kær, því bæði amma mín og afi hafa greinst með Parkinsonsveiki. Ég hef séð hvað sjúkdómurinn getur haft áhrif á daglegt líf, ekki aðeins hjá þeim sem greinast heldur líka fjölskyldunni í kring.
Með hlaupinu langar mig að heiðra ömmu mína og afa fyrir þann styrk, þrautseigju og jákvæðni sem þau sýna á hverjum degi. Jafnframt vil ég leggja mitt af mörkum til að auka vitund um Parkinsonsveiki og styðja mikilvægt starf Parkinsonsamtakanna.
Öll framlög, stór sem smá, skipta máli og eru innilega vel þegin. Takk fyrir stuðninginn og fyrir að hlaupa þessa vegferð með mér í anda ömmu minnar og afa.
Parkinsonsamtökin
Takk fyrir að hlaupa fyrir Parkinsonsamtökin! Parkinsonsamtökin og Taktur veita endurhæfingu, fræðslu, ráðgjöf og stuðning fyrir fólk með Parkinsonsjúkdóm og skylda sjúkdóma, ásamt því að vinna að bættum lífsgæðum fyrir skjólstæðinga sína og aðstandendur. Fylgstu með fréttum fyrir hlaupara Parkinsonsamtakanna á Facebook: https://www.facebook.com/groups/hlaupastyrkur/ Takk fyrir að hlaupa og styðja Parkinsonsamtökin!
Nýir styrkir












