Hlauparar

Salka Sól Sigurjónsdóttir
Hleypur fyrir Ljósið - Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið

Í ár ætla ég að hlaupa 10km í Reykjavíkurmaraþoninu og safna styrk fyrir Ljósið.
Ljósið er fjölskyldu minni mjög kært þar sem báðar ömmu mínar greindust með krabbamein og nýttu þjónustuna sem Ljósið býður upp á.
Ég hef séð hversu mikilvægan stuðning Ljósið veitir einstaklingum sem greinast með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Þess vegna ætla ég að leggja mitt af mörkum og reyna að safna 100.000kr til að styðja við starfsemi þeirra.
Öll framlög, stór sem smá, skipta máli og eru innilega vel þegin. Takk kærlega fyrir stuðninginn❤️
Ljósið - Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Ljósið er sjálfstætt starfandi endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Hjá okkur starfar þverfaglegur hópur fagaðila að andlegri, líkamlegri og félagslegri endurhæfingu þeirra sem greinast með krabbamein allt frá 16 ára aldri. Einnig veitum við þeim sem greinast og aðstandendum allt niður í 6 ára aldur fræðslu og stuðning.
Nýir styrkir












