Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Teningnum er kastað, gamlinginn ætlar að skrölta heila 3 kílómetra, hlaupandi, gangandi, skríðandi, þrátt fyrir að hafa ekki reynt að hlaupa í 35 ár, og mun samt ekki drukkna í Rúbíkonfljótinu.
Allt fyrir Vonarbrú og ástkæra vini mína á Gasa sem þjást dag og nótt, úr hungri, veikindum, örkumlum, taugaáfalli vegna stöðugra sprengju- og skotárása, sorg yfir ástvinamissi, depurð yfir að vera svipt allri framtíð, en búa þó yfir fágætri seiglu og reisn.
Ég hef fylgst daglega með stórum hópi fólks í meira en eitt og hálft ár og verð ekki samur maður eftir, með stærra hjarta, dýpri hugsun, meiri skilning, þökk sé þessum góðu vinum mínum. Og um leið æ daprari yfir skeytingarleysi heimsins.
Ég bið öll sem einhver auraráð hafa að heita á mig - til að styðja göfugt og óeigingjarnt starf Vonarbrúar.
Vonarbrú
Palestína - Komum styrkjum til barnafjölskyldna sem lifa við þjóðarmorð á Gaza.
Nýir styrkir












