Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið



Ég hleyp fyrir málefni sem skiptir mig miklu máli. ❤️
Ég hef ákveðið að hlaupa maraþon til styrktar Hjaltastöðum. Ég hef kynnt mér starf þeirra og þá sýn sem þau hafa um að skapa úrræði fyrir börn og fjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda. Það er verkefni sem ég trúi á af öllu hjarta.
Ég hef síðustu vikur kynnt mér starfsemi Hjalta Staða og hvernig þar verður unnið með börnum og ungmennum sem glíma við alvarlegan geðrænan vanda. Það hefur gefið mér von.
Sem foreldri hef ég séð af eigin raun hversu mikilvægt það er að fjölskyldur hafi aðgang að úrræðum sem byggja á skilningi, virðingu og raunverulegri endurhæfingu. Þegar barn veikist veikist öll fjölskyldan.
Þess vegna langar mig að hvetja sem flesta til að taka þátt í maraþoninu eða styðja söfnunina. Með því getum við lagt okkar af mörkum til að fleiri börn og fjölskyldur fái þá hjálp sem þau þurfa og eiga skilið.
Ég trúi því að svona úrræði geti skipt sköpum og ég vona að við stöndum sem flest saman að baki þessu mikilvæga verkefni. ❤️
Hjaltastaðir
Hjaltastaðir – Hlaupum fyrir samfélag þar sem öll fá að tilheyra** Hjaltastaðir er nýtt þróunarverkefni sem var hleypt af stokkunum vegna sárvöntunar á úrræðum fyrir ungt fólk sem á erfitt með að fóta sig í samfélaginu. Of mörg ungmenni upplifa sig eins og púsl sem passar hvergi inn, og við höfum misst of marga í blóma lífsins. Verkefnið er stofnað til minningar um Hjalta Snæ og alla þá sem hafa gefist upp, sem og til stuðnings þeim sem berjast enn í bökkum. Á Hjaltastöðum viljum við skapa öruggt samfélag byggt á samkennd, samvinnu og jafningjagrundvelli. Þar fær ungt fólk hlutverk, tilgang og tækifæri til að nýta styrkleika sína, laust við stimpla og greiningar. Horft er til náttúru, dýra og sjálfbærni til að byggja upp seiglu og vellíðan. Með því að hlaupa og heita á Hjaltastaði hjálpar þú okkur að grípa unga fólkið okkar áður en það verður of seint. Hvert skref telur!
Nýir styrkir












