Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið



Þann 22. ágúst mun ég deyja fyrir málstaðinn.
Leggðu hönd á plóg 🤙
Ég ætlaði ekki að hafa þetta neitt sérstklega flókið, en í Reykjavíkurmaraþoninu næstkomandi mun ég hlaupa hálfmaraþon til styrktar Reykjadals.
Ég gæti skrifað um Reykjadal í milljón ár en staðurinn er mér sérstaklega kær, eins og öllum þeim sem þangað koma eða til hans þekkja.
Fyrir þá sem vilja vita meira læt ég hlekki fylgja á helstu miðla búðanna og mæli ég innilega með því að öll kynni sér þessa framúrskarandi starfsemi sem á stuðning allra og hól skilið.
Þetta mun vera mitt fyrsta hálfmaraþon en ég hef ekki hlaupið í 10 ár og aldrei meira en 10k í einu, svo áskorunin er af dýrari gerðinni og algjörlega spurning um líf eða dauða.
Ég þakka öllum innilega framlögin, hvet öll til að kynna sér málefnið, hvet þau sem geta að styrkja, þau sem vilja að deila og hin sem nenna að hlaupa!
Að lokum langar mig sérstaklega að þakka bræðrum mínum í E. Sigurðsson fyrir samstarfið undanfarið ár og stuðninginn við þetta verkefni!
Reykjadalur
Gló stuðningsfélag hefur rekið sumarbúðir í Reykjadal í Mosfellsdal frá árinu 1963. Markmið okkar er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundartækifæri þar sem börn og ungmenni fá að njóta sín á eigin forsendum. Vinátta og gleði er mikilvægur þáttur í starfseminni þar sem áhersla er lögð á að öll geti eignast vini og séu fremst á meðal jafningja. Boðið er upp á sumar- og helgardvalir fyrir fötluð börn og ungmenni í Mosfellsdal allt árið um kring. Auk þess er boðið upp á Ævintýrabúðir fyrir börn með ADHD, einhverfu og andlegar áskoranir og fjölbreytta samveru og jafningastuðning fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þeirra. Alls nýta sér um 400 börn og ungmenni úrræði á vegum Gló Reykjadals ár hvert.
Nýir styrkir












