Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið


Ég hleyp fyrir Örninn vegna þess að félagið hefur reynst mér og systur minni mjög vel frá því að við misstum mömmu okkar fyrir fjórum árum. Það er frábært fólk sem stendur að félaginu og leggur sig fram við að styðja við börn sem hafa misst foreldri. Svo hef ég eignast mjög góða vini í Erninum og ég hlakka alltaf til að fara á viðburði.
Örninn - Minningar og styrktarsjóður
Örninn styður börn og unglinga á aldrinum 9 til 17 ára sem hafa misst foreldri eða annan náin ástvin. Félagið býður upp á helgardvöl og mánaðarlegar samverur fyrir börn í sorg. Þar vinnum við sorgarúrvinnslu, fáum fræðslu um ýmislegt tengt áföllum og missi ásamt því að hafa gaman saman og njóta lífsins. Samverurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en verkefnið reiðir sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar.
Nýir styrkir












