10 K

Esther Ýr Þorvaldsdóttir

Supporting Læti! / Girls Rock!

Total collected

2,000 kr.
3%

Goal

80,000 kr.

Ég ætla að hlaupa fyrir rokkbúðir í Tógó! 10k er alveg slatti fyrir mig með leiðinlega vinstri fótinn og áreynsluastmann, en þetta snýst auðvitað bara um að gera sitt besta. 

Samtökin Læti! / Stelpur rokka! fjármagna og styðja við tónlistarsumarbúðir fyrir stúlkur í Tógó í Vestur-Afríku ásamt rekstri tónlistarmiðstöðvar í höfuðborginni Lomé. Fyrstu rokkbúðirnar voru haldnar árið 2016 og skipa þær æ mikilvægari sess í samfélaginu með hverju árinu. Búðirnar fara stækkandi með hverju sumri, nú koma yfir 50 stúlkur í hvert sinn. Við ætlum að renna enn sterkari stoðum undir starfið og gera rokkbúðunum í Tógó kleift að halda áfram að þróast í takt við aðstæður og þarfir stúlkna þar í landi. 

Gerum ungum tógóskum stúlkum kleift að hafa rými til tónlistarsköpunar, rými sem er oftast ætlað drengjum, og sköpum jákvætt, styðjandi og hvetjandi andrúmsloft þar sem þær geta tjáð sig frjálslega!

Læti! / Girls Rock!

Læti! / Stelpur rokka! starfa af femínískri hugsjón við að efla jaðarsett kyn í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf. Við stuðlum að jafnrétti og inngildingu í tónlist og fræðum bæði þátttakendur og aðra um jafnréttismál á því sviði.

New pledges

Pledge history

Birta Rán Björgvinsdóttir
Amount2,000 kr.
Þú rokkar!

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Kynnisferðir / Reykjavik Excursions
  • Gatorade